24.01.2012 14:45

furðulegir hlutir


sem maður gerir.....taka 1:

horfði á hryllingmynd í gærkvöldi (elska solleis) og þegar ég fór uppí rúm var ég fljót að hoppa í það svo verurnar undir rúminu gætu ekki tekið mig!!! ;)

eitt enn:

þegar ég er extra fín og sæt og þvílíkt búin að taka mig til fyrir daginn, fer svo út og geri það sem þarf að gera og hitti engan merkilegan!! what a waste!
(auðvitað þegar staðan er hinseginn, fer út eins og blautur hundur, þá hittir maður alltaf einhvern!)

22.01.2012 19:39

Pirringur...


Í tilfefni af því að ég kom heim í dag og það var einhver sem lagði í stæðið mitt þá langar mig að tjá mig um pirring;) Við verðum öll pirruð einhverntímann...reynið ekki að neita því;)

*lagt í stæðið mitt! get orðið alveg brjál! langar alltaf að leggja þvert fyrir déskotans aðskotabílinn svo hann sé fastur!! :Þ

*skræla kartöflur! ég veit ég veit - ekki eitthvað sem maður pirrar sig á...en ég þoli ekki að skræla! verð óþolinmóð og já pirruð við þennan verknað og reyni að forðast hann eins og heitan eldinn.

*kettir...því miður, þeir pirra mig! sérsaklega þegar þeir troða sér inn á vel lokaðan og háan pall, skíta í sandinn og eru svo fastir. Vá tilhugsunin pirrar mig mikið!

*Reykingarnar hjá kallinum pirra mig. Gífurlegur kostnaður og stórreykingarmaðurinn sem ég kalla eiginmann drepur sig hægt í leiðinni! Það er alltaf vond reykingafýla af honum... og já sorry annar fylgifiskur þessara nagla er andfýla!

*óreiða pirrar mig. Get ekki slakað almenninga á nema það sé allt í röð og reglu.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

úff það er naumast að ég er pirruð núna:) En auðvitað labba ég ekki um bæinn pirruð útí allt og alla, bara svo þið haldið það ekki:Þ


hvað pirra ykkur???

30.12.2011 23:22

2011


hvað get ég sagt um árið 2011? Jah það var allavega ekki jafn viðburðarríkt og 2010, það er sko á hreinu:) en ágætt ár samt sem áður:)
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Í byrjun árs byrjuðu afmælin óumflýjanlegu hjá árgangi '81.....við Krissa tókum fyrsta höggið og buðum í frábært partý með góðum vinum:) Enda við Krissa óumdeildir partýpinnar hópsins;) hinar bólguskruddurnar gátu nú ekki haldið partý enda ekki partýpinnar eins og við Kross, en þær buða allar í mat í staðinn, sem var rosa skemmtilegt og eiginlega bara leiðinlegt að öll afmælin séu búin;)

í apríl var 4 ára afmæli litla konfekt molans míns:) það var fyrsti annar og þriðji í afmæli og hann lék á alls oddi þessi snúður.

mars apríl mai......skóli börn vinna daglegt líf hjá famelíunni og ein gæsun og steggjun:)
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
í júni skelltum við okkur í eina viku norður á Akureyri. Það var rosalega skemmtileg ferð og gaman að skoða nærliggjandi kaupstaði og bæi.

í júni var einnig eina brúðkaup ársins, En krissa og Andri gengu í það heilaga 11. júni:) frábært og fallegt brúðkaup og langar mig mikið að fara í önnur brúðkaup (finnst þau endalaust skemmtileg) þannig Geirný!!!! nú er pressa vinkona!;)
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
sumarið leið með pallasmíði og blíðviðri og ein lítil ungfrú kom í heiminn hjá Ástu Maríu og Magga:)
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Haustið kom og skólinn með því. Ernir kominn á næstu elstu deild á leikskólanum sínum og Sara Lilja komin í 7. bekk! Ég byrja seinasta árið fyrir B.ed:)

Mikil vinna í náminu var þessa önn en borgaði sig stórlega því eftir hana á ég einungis 20 einingar eftir í B.ed útskrift:)

Einn lítill Bólgustrákur kom hjá Hildi og Sigga:)

Fórum í rosalega skemmtilega bústaðarferð á Munaðarnes þar sem veðrið lék við okkur og Gunni kom með nokkra ógleymanlega frasa:)
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Jólin voru hlý og björt með góðum mat og flottum gjöfum:)
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Árið hefði reyndar mátt enda betur, en ég er búin að vera fárveik síðan á miðvikudag, með hita, sinus bólgur, gríðarlegar höfuðkvalir, verki og stífelsi í öxlum og upp í hnakka og ofan á það þá er gubban líka í heimsókn....og ég sem verð ekki veik!!! Ég var meira að segja búin að koma manni og börnum inná tengdó í mat á gamlárs...en það lítur út fyrir að ég geti reddað þessu með matinn sem betur fer:) Ég geng núna fyrir 2 parkódín og einni íbúfen á 4 tíma fresti...og það virkar, er allavega hætt að tárast úr kvölum! Því án gríns!! sársaukinn! :/
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Árið 2012 mun Karen systir fermast og þá er bara ár í að við Gunni fermum okkar skvísu:) Ernir verður 5 ára og Ásthildur systir fær bílpróf....annað verður svo bara að koma í ljós;)

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

já og endilega slettið aðeins úr klaufunum fyrir mig á gamlárs;)


25.12.2011 00:08

eru fleiri en ég.....


sem hafa nkl ekkert að gera eftir hálf 11 á aðfangadagskvöld? Hvað þá ef eiginmaðurinn er ekki heima...

Þannig er staðan núna sem og áður:) komin á fb og byrjuð að blogga hreinlega af hreinum leiðindum á þessu dýrðarkvöldi. Dagurinn var mjög góður, kláruðum allt í gær og kúrðum í náttfötunum í allan dag og höfðum frábæra dagskrá stöðvar 2 til að stytta biðina (þetta er ekki kaldhæðni, æðislega jólaleg dagskrá í allan dag). Maturinn var ljómandi góður sem endranær og hreinlega hægt að borða sósuna með skeið!




Gunni er á næturvakt í kvöld þannig að strax og búið var að ganga frá eftir matinn var hafist handa við að opna pakka flóruna:) Tókum gott holl og svo kom pása því Gunni þurfti í vinnu, hann fékk samt að koma aftur og vera til 10:) Eftir það var byrjað að næsta holli:)



Börnin fengu flottar gjafir. Sara fékk meðal annars nokia síma með snertiskjá (mjög mikið á óskalistanum) og sony "ipod" rosa flottur:) Svo fékk hún fullt að erópastal bolum, þannig peysu og buxur og fullt af öðrum fötum, naglalakk og dvd myndir, hún var mjöööög sátt vægast sagt:)



Ernir fékk FULLT af dóti, lego kubba í tonnatali og allskonar útfærslur af þeim, þyrlu, lögreglubíl, mótorhjól og fleira, star wars geislasverð, pirates sverð, snjóbuxur og fullt af fötum:) Hann var einnig mjög sáttur og gat varla slitið sig frá kubbunum til að fara að sofa:) Hann er yndislega duglegur að dunda sér með kubba, getur setið tímunum saman og kubbað allskonar geimskip, flugvélar og ýmsar bygginar:) Það er langt síðan að hann byrjaði að kubba geimskip og þannig faratæki og þau hafa alltaf verið samhverf og útpæld! það er rosalega gaman að fylgjast með honum kubba því rökhugsunin er svo innilega áberandi að það er frábært:) Nú fékk hann minni gerðina af lego (sem eru búnir að vera á óskalistanum í góðan tíma) og byrjaði auðvitað strax að skapa og græja:)





Við hjónin fengum líka flottar gjafir:) Gunni gaf mér æðislegt sítt morellato hálsmen og hann fékk málverk (svona smá til okkar beggja;) rakspíra og hlustunarpípu frá okkur krökkunum. Svo fengum við gjafaöskjur, samlokugrill og hin sívinsælu gjafabréf uppá fleiri þúsundir;)

Mamma, kalli, afi og systur komu svo í heimsókn samkvæmt hefðinni og allt datt svo í dúnalogn um hálf 11:) Þannig nú sit ég og surfa á netinu....leiddist það og fór að blogga:)
 Ú svo eru komnar í hús 30 af 40 einingum sem ég tók í haust:) seinasta einkunnin kemur ekki fyrren í janúar. En ég er svo gríðarlega ánægt með hitt! hækkaði meðaleinkunnina mína og læti:) Það eina sem er eftir í B.ed gráðu er lokaritgerðin og einn kúrs! Í lokaritgerðinni ætla ég að skrifa um læsi og lestrarkennslu ungra barna og fara inn á lestrarerfiðleika líka. Ég hef setið tvö námskeið sem fjölluðu bara um þetta og annað sem fjallaði einnig vel um þetta...þessi góði grunnur hjálpar töluvert þegar ég byrja að skipuleggja ritgerðina, ég veit ótrúlega mikið um þetta, eiginlega meira en ég geri mér grein fyrir:Þ


á morgun er svo árlega jólaboðið og hangiket hjá tengdó:)


ohh það er bara svo gaman á jólunum...finnst ykkur það ekki;)

14.12.2011 17:14

Prófin eru búin:)


En sú sæla:) það var líka rosalega gott að fá að taka til á borðstofuborðinu, fjölskyldan gat svo borða saman við það loksins;)
Nú tekur við jólastúss, sem er soldið skemmtilegra en prófstúss! Staðan er víst þannig að við eigum eftir að kaupa hverja eina og einustu jólagjöf...að Söru Lilju undanskilinni. Þannig það er nóg að gera:) Einnig ætlum við að fjárfesta í gervitré í ár í stað lifandi og þá er spurning - hvar ætli fallegustu gervitrén séu?

Bakarofninn tók svo uppá því um helgina síðustu að slá allt út þegar hann var settur í gang, mjög skemmtilegt alveg. Eitthvað sem kallast neðra "elementið" var víst ónýtt og þurfti að drösla ofninum í mælingar og Gunni skaust svo í bæinn eftir nýja "elementinu" góða, því það er víst ekki til í Keflavíkinni. Á meðan var borðaður yndislegur Keflvískur take away matur (vonandi skín kaldhæðnin í gegn)! En það fór allt vel og ofninn er kominn á sinn stað í tæka tíð fyrir jólamatinn:)

það er nú samt smá mínus á þessi jól í ár, þar sem húsbóndinn er á næturvakt yfir allar hátíðirnar:( þorláksmessu, aðfangadag, jóladag og gamlárskvöld verður hann fjarri góðu gamni:( og svo til að bæta ástandið enn frekar þá verður hann næstu helgi í neyðarbílsnámi á Slökkvistöðinni í Hafnarfirði - frá 8 um morguninn til 10 um kvöldið - laugardag og sunnudag! Er alveg í fýlu yfir þessu:( Eeeeen það þýðir víst lítið, svona er þetta bara hjá vaktavinnufólkinu og sjúkraflutningamenn þurfa víst að endurmennta sig reglulega...þannig að það er bara gamla góða mottóið mitt: Suck it up! ;)

Afmælið hennar Söru er líka eftir og á eftir að finna einhvern góðan tíma fyrir það, það verður einhverntímann í næstu viku, trúlega á þriðjudaginn.

ohhh var ég búin að minnast á hvað það er æðislegt að prófin eru búin?? :)
Jólasveinninn er einnig byrjaður að gefa í skóinn hér á bæ:) Ég held að jólasveininum finnist ekki síður gaman að gefa í skóinn en krökkunum hér á bæ að fá í hann:) Ernir Óli hefur seinustu nætur vaknað í kringum 5 um nóttina gagngert til að kíkja í skóinn, svo kemur hann kátur og glaður upp í rúm til mín að sýna mér gossið...algjört krútt.....sem sofnar svo blessunarlega aftur þegar ég læt hann vita að það sé enn nóttin:)


En já þetta er svona helsta í fréttum héðan þessa dagana:) Það varð reyndar fjölgun í saumóbörnunum í nóvember, þar sem Hildur og Siggi komu með barn númer 14 í flóruna hjá okkur vinkonunum:) Litill sætur draumaprins sem fengið hefur nafnið Björgvin Már:) Til hamingju Hildu og Siggi:)

á morgun er svo ferðinni heitið í bæinn með börnin, út að borða, bíó og jólastúss í planinu:)

læt þetta gott heita í bili...orðin ágætis ritgerð hérna, sveimérþá:)

06.12.2011 22:29

.....


Ernir Óli (4 ára gamall btw) er með þetta fína bangsímon sængurver utan um sængina sína og svo á hann cars teppi. Fyrr í kvöld átti þetta samtal sér stað:

"mamma, við gleymdum að kaupa spiderman sæng!" Svo bendir hann á sængina sína og segir: "já mamma þetta er bangsasæng...ég vil ekki svona barnasæng...og svo gleymdum við að kaupa batman teppi"

Barnið var svo mikið krútt að ég átti hálf erfitt með mig:) elsku litla barnið mitt:) hann er bara 4 ára en samt eitthvað svo stór.

já við skulum ekki gleyma hvað hann sagði í bílnum á leið heim úr leikskólanum í dag: "mamma fína fólkið er á Íslandi og ljóta fólkið í útlöndum". Maður spyr sig hvað í ósköpunum eru börnin að ræða á leikskólanum á daginn;)

ótrúlega skemmilegur strákur, það er bara staðreynd:)

02.11.2011 22:42

Ótitlað


ohh endalausa dúllan mín! Litli gaurinn minn sem hlakkar svo til jólanna:) Þegar það snjóaði í 5 mínútur um daginn spurði hann hvort það væru núna jólin og hvort við værum á leiðinni heim að borða jólamat:) Elsku snúðurinn:)





Hey og hvaða Halloween æði er þetta allt í einu? krakkar farnir að "trick or treat"! Æ mér finnst alveg nóg að þessi blessuðu börn geri þetta bara einu sinni á ári og það á hinni íslensku öskudagshátíð. En það er bara ég;) Auðvitað fór heimasætan að safna sælgæti og VÁ! hún kom með fullan risa poka af nammi heim:/ ugh!
vinkonurnar að fara;)



svo verð ég að sýna ykkur nýja lampann minn:) er ferlega skotin í honum, sá hann fyrst í þættinum cougar town og svo fór að bera á honum á fleiri stöðum. Svo er hann bara mættur í Ikea og auðvitað greip ég einn með mér;) hann er yndislega kósý get ég sagt ykkur! Eitthvað við hann :)



~~~~~~~~~~~~~~~~
Nú ligg ég líka á síðum verslanna sem ég ætla að heimsækja útí Glasgow:) hálf klæjar í fingurna að fara að versla! EInnig er þetta ogguponsu kærkomið húsmæðraorlof þótt stutt sé:) það er ferlega mikil vinna að vera í fullu námi, með heimili, þrif, eldamennsku og barnauppeldi 2 barna á herðum sér:/  já og það þýðir ekkert að koma með frasa eins og: "hva áttu ekki kall!?" því nei, get ekki sagt að hann sé svaðaleg hjálparhella þessi elska hér heima fyrir:/

anywho....jólin geta ekki komið nógu fljótt! Svo verður mikið gaman 13. des kl 12:01! tralallalalalaaaaaaaa:)

24.10.2011 20:29

skóli - again!


æ nennonumekki! verkefni verkefni verkefni!!! skiladagar framundan: 26. okt - 2. nóv - 9. nóv - 17. nóv (stórt) - 23. nóv (stórt) - 25. nóv (stórt) - 4 verkefni 2. des - 4. des! að ógleymdum vikulegu 3% verkefnunum sem eru fram að prófum!! The fun never stops;)

En þrátt fyrir þetta ætla ég að skella mér til Glasgow í skot túr í nóvember;) við mamma ætlum að skjótast og versla oggupons...verðum tvær nætur, hef ekki tíma fyrir meira;)

Um helgina á meðan Sísvangir voru á veiðum fyrir norðan, fórum við Bólgurnar (mínus Helga sem er alveg að kafna í námi eins og ég) og skelltum okkur með krakkaskarann í ævintýragarðinn (þar sem svalinn kostar 250 kall stykkið!!!). Fórum svo í 3d bíó á þór og enduðum á Fridays:)


 

Hin fræga mynd Þór fannst okkur bara lala...en augasteinninn skemmti sér mjög vel á fyrstu 3d sýningunni sinni:)  (eitthvað er furðulegur munnsvipurinn á mínum hérna:Þ)



og fridays:)

 

Svo er bara bullandi jólafirðingur í gangi!! ahh hvað ég hlakka til...jólalög - jólatré - jólafrí - jólagjafakaup - jólamatur - jólaball - jólastemning:) Það er ekkert slæmt við þau:)


18.09.2011 23:30

skóli skóli skóli


hann á mig þessa dagana...og næstu mánuði greinilega;) bæði er ég að taka 40 einingar og tveir af þessum kúrsum eru próflausir, sem þýðir náttla bara meiri verkefnaskil yfir önnina:) En ég á nú kvöldin frí og ætla ekki að gefa þau eftir...ég meina maður þarf að fara í saumó og bíó og svona;)

Annars hef ég sjúklega lítið að tala um, nema þið viljið heyra endalaust um hvað ég á æðislegan mann og börn;) Því trúið mér.....ég gæti talað útí hið óendanlega um þessar elskur;) Eeeenn svo lesendur fái ekki gubbuna ætla ég að sleppa því...fólk þarf að mæta í vinnu á morgun og svona:Þ

En var ég búin að segja ykkur hvað ég hlakka sjúklega til jóla????

já og þetta lag hérna:) það er bara ekki annað hægt en að brosa og syngja með, reyndar á það við um öll lögin hans:) en vá hvað ég hefði viljað hafa þetta lag seinasta sumar...það hefði verið nýtt í tætlur;)

http://youtu.be/QYTHrruVtFU

segiði að það komi ekki bros:)

28.08.2011 21:39

gamanið búið....


Nei segi svona:) sumarið er allavega að klárast og skólinn að byrja aftur á morgun. Þá eru allir komnir aftur í skólana sína og allt að falla í ljúfan rútínumiðaðan farveg:)

Sara Lilja var mjög spennt að byrja í 7, bekk. Það er nú alltaf gaman að byrja aftur í skólanum það er bara þannig, enda eru Reykir framundan hjá þeim þetta árið og mikil spenningur fyrir því:) Hún er líka frekar dugleg að minnast á hvað hún vil fá í fermingargjöf;) En við erum nú aðeins farin að ræða ferminguna og verð ég að segja að ég hlakka bara mikið til að ferma:) þetta gæti endað í aðeins stærri veislu en brúðkaupið (gesta fjöldalega séð) og erum við að spá í að hafa pottrétt og brauð á boðstólum ásamt eftirrétt. En...allt á frumstigi auðvitað enda ennþá tvö ár í þetta;)

Ernir Óli..jah hvað er hægt að segja um hann, annað en að hann er augasteinninn hennar mömmu sín og brillerar hér á hverjum degi:) Já og ef eitthvað barn á skilið titlinn "kafteinn Ofurbrók" þá er það hann! Hann er varla stiginn inn þá er hann kominn á brókina með slóð af fötum á eftir sér:) Ég sver barnið er á naríunum á öllum myndum teknar hérna heima:)

Við skelltum okkur uppí bústað á Munaðarnesi um helgina, fengum frábært veður...vægast sagt! Gunnar fór algjörlega á kostum með karamellunum sínum tveimur og kortalestri...án efa fyndnasti gaur sem ég þekki! :)







Næst á dagskrá er svo ljósanótt og helgina þar á eftir er það sjötugs afmælið hans afa:) Það verður svaka húllumhæ haldið hér í salnum í Innri:) Allir vinir velkomnir:)

Ég verð reyndar að segja að ég hlakka mikið til jóla!!! ohhh er alveg komin í jólafíling getsvosvariðþað! En þið vitið ég er samt alveg róleg sko:P

anywho...gúrkutíð segiði..... :)

25.07.2011 15:42

sumar og sól


svona oftast allavega:)

En það er svona það sem er að frétta héðan...bara verið að dúllast á daginn og leika sér, haldiði að það sé lúxus;) Gunni er reyndar ekki mikið með okkur þannig það er oftast bara ég og guttinn:) Talandi um guttann....ég veit varla af honum þessa dagana. Hann er svo góður, er bara úti á palli flest alla daga að leika sér og það sem hann getur dundað! Við erum að tala um klukkustundum saman þá er hann úti að bralla eitthvað, smíða, moka, kríta og bara eitthvað sem hann finnur sér:) Þetta er alveg æði. þess á milli er ég búin að vera að fara með hann í göngur, fjöruferðir (sem eru mjöööög vinsælar), á rólóvelli og bara útum allt, enda mikil orka í honum sem þarf að reyna að eyða yfir daginn;) Sara Lilja er líka búin að vera að fara með hann út að labba í kerrunni, þannig það er nóg um að vera hjá litla manninum mínum:) Svo held ég svei mér þá að hann sé þreyttari eftir daginn í sumarfríinu sínu heldur en þegar hann er á leikskólanum, en hann er að sofa svona 13 tíma á hverri nóttu:) en vanalega sefur hann um 12 tíma:)

Svo má alls ekki gleyma að minnast á skemmtilegheitin í kringum hann! endalausir gullmolar sem koma frá honum og stundum ganga krúttheitin það langt að mamman fær tár í augun barnið er svo æðis! ;) korny I know....but true! ;)









ú langar svo að sýna ykkur nýja homemade höfuðgaflinn minn:) smá föndur, 5 þús í efniskostnað og voila:



þessi rosa fíni gafl sem ég gæti ekki verið sáttari með:) svo var hann svo hræódýr að það er alltaf hægt að skipta í eitthvað annað án þess að tíma ekki að losa sig við hann:P

Vildi að ég hefði nú ekkert hrikalega rosalega spennandi að segja frá...;) hmmm...við Sara Lilja og Karen systir ætlum að skella okkur á Harry Potter í kvöld og fara eitthvað út að borða áður, hlakka mikið til að sjá Potterinn enda fan:)

Versló er ekki alveg ákveðin, hvort við eltum saumó sem er að spá í að fara norður eða förum eitthvað aðeins styttra, eða bara verðum heima....kemur í ljós:)




13.07.2011 19:49



"mamma...krítarsúpan er til!!" :)


27.06.2011 22:58

this and that


pallur pallur pallur:) eða meira kannski hálfur pallur:) hann er bara alveg að verða ready:) ég verð svooo glöð þegar hann er tilbúin, ætla meira að segja að fá mér sumarblóm;) Ég vil einnig taka það fram að frúin sjálf tók sig til og steypti í holurnar fyrir staurana!!;) og fór létt með það;)






já svo komst ég að því um daginn í mjög svo löngu útilegunni sem ég fór í, að ég er ekkert svo klár í þessu útilegu brasi....æ hef svosem alltaf vitað það:) ég er meiri svona sumarbústaðar týpa;) held ég sé aðeins of háð öllum lífsins þægindum! úfff ég væri fyrst til að vera rekin af eyjunni í survivor!
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
Ásta María og Signý kíktu í heimsókn til okkar Ernis um helgina, þetta var svakalegur letidagur og því fínt að fá heimsókn:) þessir dúllukrakkar skiptust á að klaga hvort annað en um leið og þeim var hleypt út þá urðu sko allir bestu vinir;)



litlu hjónin að fá sér kvöldmat:)

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
svo er ég búin að vera að gramsa í gömlum myndum....



ohhh einu sinni var maður bara oggupons... alveg yndislegasta barn sem ég hef séð;) en ekki hvað;)



alvarlegir feðgar.... en alveg sjúklega sætir:)

því miður þá eru engar "baby pictures" af Söru Lilju til á tölvuformi....læt það alveg bögga mig stundum...en svona er það þegar maður fæðist á seinasta árþúsundi! stafrænar myndavélar og tölvur voru bara ekki á öllum heimilum;) En þetta er allt til í albúmum...skanna kannski inn nokkrar góðar við gott tækifæri:)

Snúllan mín á leið til mallorca 2006:)



ohhh elsku dúllan mín:) svo gullfalleg:)

en já þetta var svona "seint um kvöld, þreytt og leiðist pínu blogg"... búin að fara marga hringi í netheiminum og búin að skoða mjöööög margar myndir í tölvunni;)

13.06.2011 00:35

....


Þá er Akureyrar ferðin komin og farin og skemmtum við okkur bara ljómandi vel þrátt fyrir smá snjókomu, vind og oggupons kulda;) Við keyrðum útum allar sveitir, kíktum til Dalvíkur, Húsavíkur og Ólafsfjarðar, fórum í Vaglaskóg, Kjarnaskóg auðvitað og könnuðum hvern krók og kima á Akureyri. Fórum í nokkur söfn og auðvitað jólahúsið já og fyrst við vorum á Akureyri þá urðum við að fara og fá okkur Brynjuís....ok sorry people...annan eins ógeðis ís hef ég aldrei fengið! Hann var bragðlaus, vatnskenndur og bara hrikalegur í alla staði. Lak eins og vatn í þokkabót, get ekki alveg séð fyrir hvað þessi blessaði ís er frægur, jah kannski bara fyrir að vera óætur;)

Föstudeginum seinast var eytt í salnum að hjálpa Krissu og Andra verðandi brúðhjónum að gera allt fínt og sætt:) Og svo var brúðkaupið þeirra í gær:) það var alveg yndislegt, ég var með gæsahúð alla kirkjuna og held því svo fram að borð okkar frábæru Bólgna og Bólgueyðandi hafi verið skemmtilegsta borðið í salnum! það var bara þannig;) veislan var rosalega skemmtileg og það bara klikkar aldrei þessi æðislegi félagsskapur frá þessum frábæru vinum sem maður á! :)

fjölskyldan eftir athöfnina:)



fallega fallega brúðurin:)



~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Áðan skelltum við okkur á x-men og var hún bara ljómandi góð:) það er svo fullt af myndum sem mig langar að sjá í sumar: Super 8, Transformers, Harry Potter og margar fleiri;) ég á bara eftir að vera í bíó getsvosvariðþað..og Gunni greyið er dreginn með mér á þetta allt;)

en já svo lítur allt út fyrir það að sumarið sé kannski að gæjast á okkur...og ekki er það nú slæmt;)

28.05.2011 20:07

Ernir Óli


það sem flýgur ekki útúr Erni Óla þessa stundina! Hann skýtur út heimspeki og gullmolum hægri vinstri og ég ákvað að drullast til að ná í blað og skjalfesta orð þessa litla frábæra manns:)

Við matarborðið áðan sagði ég við hann að hann myndi fá verðlaun ef hann yrði duglegur að borða matinn sinn. Eftir matinn fékk hann íspinna....borðaði svona 2/3 af honum og kom til mín og sagði: "mamma ef ég er duglegur að borða ísinn minn þá fæ ég verðlaun!" :)

Áður hafði hann sagt að pabbi sinn væri sko ekki í vinnunni, heldur í sjónum að berjast við hákarla!:)

Já það er sko fullt að frábæru efni sem lekur af honum alltaf:) Hann er alveg langflottastur:)

Í dag skelltum við okkur í sveitaferð með leikskólanum. Ernir naut sín í botn með litlu hvolpunum, kettlingunum og kanínuungunum:)




Signý vinkona hans var líka með:)



jæja best að koma þessum litla hoppandi orkubolta í rúmið......:)